Um Kolbrúnu Magnúsdóttur

Raunverulegur árangur hefst hjá okkur sjálfum

Ég hef ástríðu fyrir því að styðja fólk á sinni vegferð að aukinni sjálfsvitund, innri styrk og jafnvægi.

Kolbrún Magnúsdóttir

Ég trúi því að hver og einn búi yfir einstökum hæfileikum og óendanlegum möguleikum. Lausnirnar sem við leitum að eru ekki í okkar ytra umhverfi heldur innra með okkur sjálfum. Hlutverk mitt er að styðja þig á þinni vegferð með því að skapa öruggt rými þar sem þú getur tengst eigin styrkleikum, mótað skýra framtíðarsýn og byggt líf sem endurspeglar þín gildi, drauma og það sem skiptir þig mestu máli.

Á minni eigin vegferð hef ég kynnst því hvernig áskoranir, mótbyr og breytingar geta orðið upphaf að dýpri vexti og aukinni sjálfsþekkingu. Sú reynsla kenndi mér að raunveruleg umbreyting hefst innan frá. Þegar við hægjum á, lítum inn á við og tengjumst aftur kjarnanum okkar skapast rými fyrir skýrleika, jafnvægi og aukinn lífskraft. Þessi lífssýn hefur mótað bæði mig sem manneskju og þá nálgun sem ég vinn eftir í dag.

Menntun og reynsla

Heildræn nálgun byggð á þekkingu

Til að styðja þessa heildrænu nálgun hef ég byggt upp víðtæka menntun og reynslu á sviði mannauðsmála, markþjálfunar og yoga.

MSc í mannauðsstjórnunFagleg þekking á mannauðsmálum og stjórnun
ACC-vottaður markþjálfiInternational Coaching Federation (ICF) – grunn- og framhaldsnám í markþjálfun
YogakennariYoga Nidra kennari og kennari í yoga therapy
TónheilunMenntun í tónheilun sem styður líkama, huga og taugakerfi

Þessi þekking hefur veitt mér dýpri skilning á samspili hugar, líkama, tilfinninga og taugakerfis og því hvernig allt hefur áhrif á líðan, sjálfsmynd og getu okkar til að lifa lífinu til fulls.

Kolbrún í jógastöðu við foss
Nálgunin

Hlýja, traust og mannleg tenging

Fyrir mér snýst vellíðan ekki um að laga eitthvað sem er „að“ heldur að muna hver við erum með því að tengjast okkar innri visku, skýrleika og styrk.

Ég trúi því að hver einstaklingur sé á sinni eigin vegferð og að engin ein lausn henti öllum. Markmið mitt er ekki að segja þér hver þú eigir að vera eða hvað er best fyrir þig, heldur að styðja þig við að endurheimta tengslin við þá manneskju sem þú ert í raun og veru. Þegar þau tengsl styrkjast verður auðveldara að taka ákvarðanir af öryggi, mæta áskorunum af hugrekki og lifa í meira jafnvægi sama hvað gerist í þínu lífi.

Það sem veitir mér mesta gleði er að sjá fólk upplifa augnablikið þegar eitthvað smellur á sinn stað, þegar innri ró eykst, sjálfstraustið vex og ný sýn opnast. Ég þekki þá vegferð af eigin raun og veit að krafturinn sem þú leitar að er ekki í þínu ytra umhverfi heldur býr hann innra með þér, þú þarft bara að finna aftur tengingu við hann.

Lífið er ekki áfangastaður heldur vegferð. Við getum ekki alltaf stjórnað aðstæðum okkar, en við getum alltaf haft áhrif á hvernig við mætum þeim. Með aukinni meðvitund skapast rými til að velja með meiri skýrleika, hugrekki og innri ró.
„Valið er alltaf okkar“
Um Hugarþol

Heildræn starfsemi fyrir fólk og fyrirtæki

Hugarþol styður fólk og skipulagsheildir í að rækta innri styrk, sjálfsvitund og jafnvægi – með mannlega, hlýja og heildræna nálgun þar sem vellíðan og skýrleiki eru í forgrunni.

Hugarþol er heildræn starfsemi sem styður einstaklinga í að dýpka tengsl við sjálfan sig, efla sjálfsvitund og rækta innri styrk í lífi og starfi. Fólk sem vill hægja á, finna skýrleika í ákvörðunum og skapa meira jafnvægi og vellíðan í daglegu lífi.

Starfsemin byggir á markþjálfun, jóga, núvitund, faglegri þekkingu og persónulegri reynslu. Markmiðið er að styðja raunhæfar og varanlegar breytingar sem styrkja einstaklinga til lengri tíma – bæði persónulega og faglega.

Hugarþol býður einnig upp á sveigjanlega þjónustu við fyrirtæki þegar kemur að því að styðja við og styrkja mannauðinn, hvort sem það er með mannauðsráðgjöf, mannauðsstjóra að láni, markþjálfun eða yoga.

Skoða þjónustuna