Persónuverndarstefna
Hvernig við meðhöndlum upplýsingar um þig, og hvaða skilmálar gilda um þjónustu Hugarþols.
Traust og persónuvernd
Traust er ein af grunnstoðum Hugarþols. Þegar þú heimsækir heimasíðuna okkar, hefur samband við okkur eða nýtir þér þjónustu Hugarþols treystir þú okkur fyrir upplýsingum um þig. Við leggjum okkur fram um að meðhöndla þær af ábyrgð, virðingu og í samræmi við gildandi persónuverndarlög.
Markmið Hugarþols er að skapa öruggt, hlýlegt og faglegt rými þar sem einstaklingar geta staldrað við, eflt sjálfsvitund sína og unnið að eigin vellíðan. Þessir skilmálar eru ætlaðir til að skapa skýrar væntingar um þjónustu okkar og tryggja góða upplifun fyrir alla.
Við leggjum ríka áherslu á trúnað og virðingu í samskiptum við skjólstæðinga okkar og þátttakendur á námskeiðum. Upplýsingar sem verða til í tengslum við markþjálfun, einstaklingsviðtöl eða aðra persónulega þjónustu eru meðhöndlaðar af fyllstu virðingu og trúnaði.
Hvaða upplýsingum söfnum við
Heimasíðan notar aðeins nauðsynlegar vefkökur til að tryggja eðlilega virkni síðunnar. Við söfnum aðeins þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita þjónustu okkar eða svara fyrirspurnum.
Ef þú skráir þig á póstlistann okkar geymum við netfangið þitt til að senda þér fréttir og fróðleik frá Hugarþoli. Þú getur afskráð þig hvenær sem er með tengli neðst í hverjum pósti, og þá er netfanginu eytt af listanum.
Við seljum aldrei persónuupplýsingar og afhendum þær ekki þriðja aðila nema lög kveði á um það eða það sé nauðsynlegt til að veita þjónustuna.
Skilmálar: greiðslur og afbókanir
- Skráning á námskeið, viðburði eða einstaklingsþjónustu telst staðfest þegar greiðsla hefur borist eða annað hefur verið sérstaklega samið um.
- Greiða má með þeim greiðsluleiðum sem í boði eru hverju sinni.
- Óskað er eftir að afbóka með að minnsta kosti 24 klukkustunda fyrirvara ef um einkatíma er að ræða.
- Við afbókun með skemmri fyrirvara eða ef viðkomandi mætir ekki getur fullt gjald verið innheimt.
- Hugarþol áskilur sér rétt til að færa eða fella niður námskeið eða viðburði ef óviðráðanlegar aðstæður skapast eða þátttaka reynist ekki næg.
- Ef námskeið fellur niður af okkar hálfu er þátttakendum boðin ný dagsetning eða full endurgreiðsla.
Ábyrgð þátttakenda
Við leggjum áherslu á að skapa öruggt og traust umhverfi þar sem hver og einn getur tekið þátt á sínum eigin forsendum.
Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á eigin líkamlegri og andlegri líðan og eru hvattir til að virða eigin mörk og mörk annarra.
Ef þú ert með undirliggjandi heilsufarsvandamál eða ert í meðferð sem gæti haft áhrif á þátttöku mælum við með að þú ráðfærir þig við heilbrigðisstarfsfólk áður en þú tekur þátt.
Mikilvægt að hafa í huga
Markþjálfun, Yoga Nidra, hugleiðsla, öndunaræfingar, tónheilun og önnur þjónusta Hugarþols eru ætlaðar til að styðja við persónulegan þroska, aukna sjálfsvitund og vellíðan.
Þjónustan kemur ekki í stað læknisfræðilegrar, sálfræðilegrar eða annarrar heilbrigðisþjónustu og felur ekki í sér greiningu eða meðferð sjúkdóma.
Hafðu samband
Ef þú hefur spurningar um persónuvernd eða vilt fá upplýsingar um þig leiðréttar eða þeim eytt, sendu okkur línu á kolbrun@hugarthol.is.
Ábyrgðaraðili: Hugarþol ehf., kt. 441023-0220.
