Þjónusta

Heildræn þjónusta fyrir einstaklinga og fyrirtæki

Hugarþol býður upp á heildræna þjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem vilja efla sjálfsvitund, innri styrk og vellíðan. Með markþjálfun, Yoga Nidra, tónheilun og mannauðsráðgjöf vinnum við að því að skapa skýrleika, jafnvægi og sjálfbæran vöxt í lífi og starfi.

Tesett í mjúkri birtu
Markþjálfun og lífsþjálfun

Raunverulegur árangur hefst hjá okkur sjálfum

Markþjálfun er árangursmiðuð og kerfisbundin samtalstækni þar sem áhersla er lögð á kröftugar spurningar, stuðning, áskorun og endurgjöf sem miðar að því að hjálpa einstaklingum að stilla sinn innri áttavita og efla þannig vitund sína og ábyrgð, skapa rými fyrir viðhorfsbreytingar og öðlast varanlegar breytingar í sínu lífi.

Í markþjálfun er athyglin sett á nútíð og framtíð þar sem skoðuð er raunstaða og framtíðarsýn. Markþjálfunarferlið styður við einstaklinginn í að skilgreina hverju hann þarf að veita athygli til að ná auknum árangri og meiri skilvirkni og varða markvisst leið sína að sinni framtíðarsýn. Viðfangsefni geta til dæmis verið persónulegur vöxtur, aukin lífsgæði eða betri frammistaða og árangur. Fer það eftir því hvað hverjum og einum finnst mikilvægt að veita athygli hverju sinni.

Innri heimur okkar skapar okkar ytri veröld

Innri heimur okkar endurspeglar hvernig við hugsum, leysum vandamál, tökumst á við áskoranir og hvernig við sjáum heiminn. Hann hefur bein áhrif á hvernig við nærum líkama, sál og huga og mótar öll okkar viðbrögð, ákvarðanir og þann árangur sem við getum náð.

Ég trúi því að raunverulegar og varanlegar breytingar hefjist innan frá. Þess vegna hjálpa ég þér ekki bara að varða vegferðina þína, heldur förum við saman inn á við, skoðum hvaða innri þætti, hugsanir og viðhorf þarf að veita sérstaka athygli til að ryðja veginn og skapa skilyrði fyrir raunverulegan vöxt. Með þessari nálgun er hægt að tryggja að breytingarnar séu ekki aðeins mælanlegar heldur einnig varanlegar og í samræmi við þín gildi og framtíðarsýn.

Þegar við förum þessa vegferð saman lærir þú að tengjast þér á nýjan hátt, sem gerir þér kleift að njóta vegferðarinnar og takast á við áskoranir og hindranir með auknu jafnvægi, sjálfstrausti og skýrari sýn. Þetta er ekki bara ferðalag til árangurs, heldur einnig leið til dýpri skilnings að kraftinum sem býr innra með þér.

Senda fyrirspurn

Þrír sléttir steinar í röð
Lífsþjálfun · prógram

Að endurvekja lífskraftinn

Vilt þú lifa í meiri samhljómi við sjálfa/n þig, taka skýrari ákvarðanir og standa af öryggi í eigin sannleika?

Að endurvekja lífskraftinn er innra ferðalag sem fer fram á netinu þar sem þú getur komið þér þægilega fyrir í þínu rými. Við vinnum út frá því að styrkja aðgang þinn að þeirri visku, skýrleika og innri styrk sem býr nú þegar innra með þér.

Á námskeiðinu er athyglinni beint að innri samskiptum, hugsunum, tilfinningum, viðhorfi, styrkleikum og gildum, með það að markmiði að bæta lífsgæði og skapa meiri vellíðan í daglegu lífi.

Þú færð rými til að:

  • Hlusta betur á sjálfa/n þig og eigin þarfir
  • Losa um gömul mynstur og sjálfvirk viðbrögð
  • Efla sjálfstraust, sjálfsábyrgð og innri ró
  • Styrkja innsæið og hlusta á svörin sem búa innra með þér

Innifalið

  • 5 markþjálfunartímarVið hittumst aðra hverja viku
  • Stuðningur milli fundaÞú ert ekki ein/n á vegferðinni
  • Bókin Að endurvekja lífskraftinnVerkefni úr bókinni styðja við sjálfsvinnu milli funda
  • 3 Yoga Nidra upptökurStyðja við djúpa slökun, róa taugakerfið og skapa rými fyrir samþættingu og innra jafnvægi

Þú þarft ekki að vera með allt á hreinu.
Þú þarft bara að vera tilbúin/n að mæta sjálfri/um þér af heiðarleika.

Senda fyrirspurn
Kyrrlátt jógarými með tónskálum
Yoga Nidra og tónheilun

Í hraða dagsins gleymum við oft að staldra við

Við erum stöðugt að hugsa, skipuleggja, leysa verkefni og sinna öðrum. Smám saman fjarlægjumst við okkur sjálf og missum tengslin við innri ró, skýrleika og lífskraft.

Yoga Nidra og tónheilun eru boð um að hægja á. Boð um að leggja áhyggjurnar til hliðar um stund, stíga út úr öllum hlutverkunum þínum, sleppa takinu á áreiti dagsins og leyfa líkama og huga að hvílast. Í þessari djúpu slökun skapast innra rými þar sem streitan fær að líða úr líkamanum, hugurinn að róast, taugakerfið að gefa eftir og þú færð tækifæri til að tengjast aftur sjálfum þér.

Fyrir mér er Yoga Nidra ekki aðeins djúp slökun heldur innra ferðalag. Ferðalag þar sem við hættum að leita svara í okkar ytri aðstæðum og gefum okkur tíma til að hlusta á það sem býr innra með okkur. Þar sem við munum að við þurfum ekki að verða einhver önnur manneskja heldur fá að vera meira við sjálf.

Þegar við hægjum á verður oft skýrara hvað skiptir okkur raunverulega máli. Við finnum meiri ró, aukinn skýrleika og sterkari tengingu við okkar innri visku. Þaðan verður auðveldara að mæta lífinu af jafnvægi, sjálfstrausti og meðvitund.

Í tímum mínum sameinast Yoga Nidra og tónheilun í hlýja og heildræna upplifun sem styður líkama, huga og taugakerfi. Markmiðið er að skapa öruggt rými þar sem þú getur hvílst, endurnærst og endurheimt tengslin við sjálfan þig.

EinkatímarSérsniðnir að þínum þörfum, ein/n eða með litlum hópi – einnig með tónheilun. Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar.
Opnir tímar í Yoga ShalaAllir velkomnir. Ef þú ert ekki með kort getur þú keypt þér stakan tíma.
Námskeið á netinuAuglýst sérstaklega – hafðu samband fyrir nánari upplýsingar.
FyrirtækjaþjónustaFrábær leið fyrir fólkið þitt til að endurstilla fókusinn, finna innri ró og aukið jafnvægi. Rannsóknir sýna að regluleg iðkun Yoga Nidra getur dregið úr streitu, styrkt einbeitingu, aukið afköst og eflt sköpunarkraftinn.

Senda fyrirspurn

Bjart og kyrrlátt rými
Mannauðsráðgjöf

Mannauðurinn er mikilvægasta auðlind hvers fyrirtækis

Fullyrt er að bættur rekstur fyrirtækja verði að miklu leyti sóttur í betri stjórnun á mannauði. Því er það vel þess virði að feta nýjar og betri leiðir til að efla fólk í starfi. Með því að hlúa vel að mannauðnum eykst starfsánægja og helgun starfsmanna.

Hvernig er staðan á mannauðsmálum í þínu fyrirtæki? Ertu með góða yfirsýn yfir alla lykilþætti mannauðsstjórnunar eða vantar þig aðstoð við að skilgreina og koma hlutunum í betri farveg?

Sveigjanleg lausn fyrir þitt fyrirtæki

Hvort sem fyrirtækið þitt er með mannauðsstjóra eða ekki, þá getur það verið afar gagnlegt að fá mannauðsstjóra að láni. Ég býð upp á sveigjanlega þjónustu sem hægt er að aðlaga að þínum þörfum – hvort sem um ræðir ákveðin verkefni eða fasta viðveru.

Ég tek þátt í að leysa úr áskorunum og styðja við stjórnendur í mannauðstengdum málum. Með faglegri nálgun og markvissum stuðningi hjálpa ég þér að ná fram því besta hjá hverjum og einum í þínu teymi, sem stuðlar að aukinni framleiðni, betri árangri og meiri vellíðan á vinnustað.

Saman tryggjum við að mannauðsmálin séu í góðum höndum, þannig að þú getur einbeitt þér að því að byggja upp og efla fyrirtækið þitt með öflugri liðsheild að baki.

Senda fyrirspurn

Hafðu samband

Hafðu samband til að bóka eða fá nánari upplýsingar

Ég hlakka til að heyra frá þér og styðja við þína vellíðan.

Hafa samband