Við höfum öll upplifað breytingar í lífinu, stórar og smáar, sumar sem við veljum sjálf og aðrar sem við höfum ekkert um að segja. Við tölum mikið um breytingar í fyrirtækjum og á vinnustöðum, um breytingastjórnun, mótspyrnu, innleiðingu og mikilvægi þess að fólk skilji tilgang breytinga. En hvað með breytingarnar sem eiga sér stað innra með okkur sjálfum?
Mér finnst reyndar persónuleg þróun betra orð yfir þær breytingar, því fyrir mér snýst persónuleg þróun meðal annars um að styrkja okkar eigin sjálfsforystu.
Persónuleg þróun snýst ekki bara um að breyta ytri aðstæðum, skipta um vinnu, flytja, enda samband eða taka stórar ákvarðanir. Hún snýst um að þora að horfa inn á við, skoða eigin hugsanir, hegðun, skugga og mynstur og spyrja sig af hreinskilni: Hvað af þessu þjónar mér vel og hverju er ég tilbúin að breyta?
Það er oft auðveldara að sjá hvað þarf að breytast í umhverfinu en að horfa á eigin þátt í því hvernig lífið okkar hefur þróast. Mín reynsla er hins vegar sú að einmitt þar byrjar raunverulega breytingin.
Þegar það verður erfiðara að gera ekkert
Mín vegferð byrjaði ekki vegna þess að ég vaknaði einn morguninn full af innblæstri og ákvað að nú væri kominn tími á smá persónulegan vöxt. Hún byrjaði vegna þess að sársaukinn var orðinn svo mikill að ég gat ekki haldið áfram eins og ég hafði gert.
Það var einfaldlega orðið erfiðara að gera ekkert en að gera eitthvað.
Sársaukinn varð drifkrafturinn sem kom mér af stað, en þegar ég lagði af stað var ég samt sannfærð um að margt í mínu ytra umhverfi þyrfti að breytast svo mér gæti liðið betur. Aðstæður þyrftu að vera öðruvísi og ákveðið fólk mætti gjarnan breyta sér aðeins líka.
Smám saman áttaði ég mig á því að ég hafði verið að horfa á þetta frá röngum stað. Ég gat haft skoðanir á hegðun annarra og tekið ákvarðanir um hvað og hverja ég vildi hafa í mínu lífi, en eina manneskjan sem ég gat raunverulega breytt var ég sjálf.
Það breytti leiknum.
Í stað þess að beina allri athyglinni út á við þurfti ég að fara að skoða minn eigin þátt. Hvernig ég hugsaði, hvernig ég brást við, hvaða mörk ég setti eða setti ekki, hvaða ákvarðanir ég tók og hvaða hegðun ég hélt áfram að endurtaka þótt hún væri löngu hætt að þjóna mér.
Þegar ég fór að breyta þessu breyttist líka upplifun mín af lífinu.
Sum sambönd urðu betri en önnur breyttust eða fjarlægðust. Það var ekki alltaf auðvelt og stundum fylgdi því töluverður sársauki. Það komu líka augnablik þar sem ég spurði mig hvort þetta væri þess virði og hvort það væri ekki einfaldara að fara aftur í gamla farið sem ég þekkti svo vel.
En ég vissi líka hvað beið mín þar.
Það sem ég var farin að upplifa í staðinn vó þyngra: betri líðan, meiri gleði, sterkari tilgangur og umfram allt meiri tenging við sjálfa mig. Ég var ekki tilbúin að fórna því til þess eins að komast aftur í eitthvað kunnuglegt og falla betur inn í hópinn.
Þegar gamla útgáfan passar ekki lengur og þessi nýja er enn í mótun
Eitt af því sem mér finnst áhugaverðast við persónulega þróun er tímabilið þegar gamla útgáfan af okkur passar ekki lengur en sú nýja er ekki heldur fullmótuð. Þetta millibilsástand getur verið verulega óþægilegt og skapað mikla togstreitu innra með okkur.
Gamlar venjur toga í okkur, gömul viðbrögð birtast og hugurinn leitar ósjálfrátt í það sem hann þekkir. Á sama tíma vitum við að við viljum ekki lengur fara sömu leið.
Við erum einhvers staðar mitt á milli þess gamla og nýja.
Þegar við erum á þessu hlutlausa svæði gera efinn, óvissan og stundum streitan gjarnan vart við sig. Þá finnst mér mikilvægt að vera meðvituð um það sem er að gerast í stað þess að bregðast sjálfkrafa við óþægindunum með því að fara aftur í gamla farið.
Þarna er ástæða til að staldra við og spyrja: Hvar er ég stödd á vegferðinni? Hvað er raunverulega að gerast? Er ég á þeirri leið sem ég vil vera á eða er gamla mynstrið einfaldlega að toga í mig vegna þess að það er kunnuglegt?
Gömul mynstur geta verið sterk og látið reglulega á sér kræla, sérstaklega í upphafi. Með tímanum og endurtekningunni getur það nýja hins vegar farið að festa sig í sessi og það sem áður krafðist mikillar meðvitundar verður smám saman eðlilegri hluti af því hvernig við lifum og bregðumst við.
En til þess þurfum við að vera tilbúin að skoða okkur af hreinskilni frekar en að segja okkur bara þá sögu sem okkur langar mest að heyra.
Af hverju lagði ég af stað? Hverju vil ég raunverulega breyta? Hver er ávinningurinn? Hver er fórnarkostnaðurinn? Og hvað kostar það mig að gera ekkert?
Persónuleg þróun krefst nefnilega ekki bara hugrekkis. Hún krefst líka seiglu og ábyrgðar.
Hvaða hlutverk ætla ég að leika í minni eigin bíómynd?
Fyrir stuttu kom upp í huga minn spurning: Hvaða hlutverk ætlar þú að leika í þinni eigin bíómynd?
Svarið kom strax: Nú, auðvitað aðalhlutverkið.
Svo kom næsta spurning: Og hvenær ætlar þú að byrja að leika það?
Þarna varð aðeins meiri þögn.
Ég áttaði mig á því að ég hef ansi oft verið í aukahlutverki í mínu eigin lífi og stundum nánast uppfyllingarefni. Ég hef sett þarfir annarra, verkefni, væntingar og allt það sem „þarf“ að gera framar mínum eigin þörfum, löngunum og draumum.
Og það sem skiptir máli fyrir mig í þeirri uppgötvun er þetta: Ég ber ábyrgð, enginn annar. Ég tók þessar ákvarðanir sjálf, oft óumbeðin.
Ég get skoðað hvers vegna ég gerði það, hvaðan mynstrið kom og hvað ég var að reyna að fá eða forðast. Það hjálpar mér að skilja sjálfa mig betur, en skilningurinn breytir því ekki að ábyrgðin á því hvað ég geri héðan í frá er mín.
Kannski er það einmitt það sem felst í því að taka aðalhlutverkið í eigin lífi. Ekki að allt snúist um mig, að ég stjórni öllu eða að annað fólk skipti minna máli, heldur að ég taki ábyrgð á mínum ákvörðunum, mörkum, hegðun og því hvernig ég vil lifa mínu lífi.
Ég get ekki stjórnað því hvað annað fólk gerir, hvernig það bregst við mér eða hvað lífið leggur fyrir mig. En ég get tekið ábyrgð á því hvernig ég bregst við því sem kemur upp.
Óttinn og efinn geta haldið áfram að mæta og gamla hegðunin getur minnt reglulega á sig. Markmiðið er ekki að útrýma óttanum enda gegnir hann mikilvægu hlutverki. Munurinn liggur í því hvort við látum hann stjórna ákvörðunum okkar og lífinu sem við lifum.
Hann má sitja með í bílnum en hann fær ekki að keyra.
Persónuleg þróun hefur líka kostnað
Mér finnst stundum talað um persónulega þróun eins og hún sé bein og falleg leið að einhvers konar betri útgáfu af okkur sjálfum.
Mín reynsla er ekki þannig.
Henni getur fylgt ótti, sorg, óvissa, mistök, missir og erfiðar ákvarðanir. Við getum þurft að sleppa tökum á gömlum hugmyndum um okkur sjálf, breyta samböndum, setja mörk sem öðrum líkar ekki og horfast í augu við eigin hegðun sem við erum ekkert sérstaklega stolt af.
En henni getur líka fylgt meiri gleði, aukin sjálfsþekking, meira frelsi og skýrari tilfinning fyrir því hvað skiptir okkur máli.
Enginn annar getur ákveðið fyrir okkur hvort sá ávinningur sé kostnaðarins virði. Það er okkar að meta og fyrir mig hefur kostnaðurinn verið þess virði og vel það.
Þess vegna finnst mér mikilvægt þegar við stöndum frammi fyrir breytingum að spyrja ekki eingöngu: Hver er ávinningurinn af þessari vegferð? heldur líka: Hvað þarf ég að leggja á mig? Hverju gæti ég þurft að sleppa? Hvar er ég tilbúin að taka meiri ábyrgð?
Og svo spurningin sem getur stundum verið óþægilegust: Hvað gerist ef ég geri ekkert? Að gera ekkert er nefnilega líka ákvörðun.
Persónuleg þróun snýst að mínu mati að stórum hluta um að aflæra, endurlæra og læra eitthvað nýtt. Ekki endilega um að verða einhver önnur manneskja heldur að sjá skýrar hver við erum þegar við förum að losa okkur undan gömlum mynstrum, hlutverkum og hugmyndum um hver við eigum að vera.
Fyrir mér hefur þessi vegferð snúist um að kynnast sjálfri mér betur, taka ábyrgð á því sem er mitt og hafa hugrekki til að breyta því sem ég veit að ég vil ekki lengur taka með mér áfram.
Og að lokum, hvað er sjálfsforysta: Samkvæmt Andrew Bryant og Ana Kazan þá er sjálfsforysta að hafa með meðvituðum hætti áhrif á eigin hugsanir, tilfinningar og gjörðir í átt að markmiðum sínum




